Tækjaþon – Hugmyndasmiðja um lausnir gegn raftækjasóun

6. september 2023

Skráning á Tækjaþon er nauðsynleg – sjá hér

Hvað er Tækjaþon?

Tækjaþon er tveggja daga hugmyndasmiðja um lausnir gegn raftækjasóun. Þátttakendur læra um vanda raftækjaiðnaðarins og þróa og skapa í framhaldinu lausnir sem sporna gegn raftækjasóun.

Fyrirlesarar fjalla um stöðu vandamálsins og hönnunarferlið þegar kemur að því að fá góða hugmynd sem þróa á yfir í árangursríkar lausnir sem eru bæði raunhæfar og gagnlegar. Teymin þróa hugmyndir, skila samantekt af þeim og kynna fyrir dómnefnd. Veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndina.

Af hverju ættir þú að taka þátt?

Það er erfitt að ímynda sér lífið án raftækja. Við framleiðslu þeirra eru dýrmætar auðlindir ofnýttar og eru þau sá flokkur úrgangs sem vex hvað hraðast. Á Tækjaþoni færðu tækifæri til að fræðast um stöðuna, kynnast fjölbreyttum hópi fólks og skapa nýstárlegar lausnir undir handleiðslu sérfræðinga.

Helstu áskoranir:

Fyrir hverja er Tækjaþon?

Alla þá sem brenna fyrir tækni, umhverfismálum og/eða nýsköpun. Fólk á öllum aldri og kynjum er hvatt til þess að skrá sig og taka þátt, því fjölbreyttari sem hópurinn er því betra.

Hvar og hvenær?

Tækjaþon verður haldið dagana 13. og 14. október næstkomandi hjá Umhverfisstofnun á Suðurlandsbraut 24 og í Góða Hirðinum á Köllunarklettsvegi 1.

Dagskrá er eftirfarandi:

Föstudagur 13. október – Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24

08:30 – 09:00 Húsið opnar
09:00 – 10:20 Dagskrá
10:20 – 10:30 Kaffipása
10:30 – 10:40 Dagskrá
10:40 – 11:50 Hugmyndavinna
12:20 – 13:00 Hádegismatur
13:00 – 13:20 Dagskrá
13:20 – 14:30 Myndun teyma
14:30 – 14:45 Kaffipása
14:45 – 18:00 Teymisvinna
18:00 – 18:30 Pizza!
18:30 – 21:00 Teymisvinna*

Laugardagur 14. októberGóði Hirðirinn, Köllunarklettsvegi 1

09:30 – 10:00 Húsið opnar – morgunmatur
10:00 – 11:00 Dagskrá
11:00 – 17:00 Teymisvinna*
17:00 – 18:00 Teymin kynna
18:00 – 18:30 Drykkir og mingl
18:30 – 19:00 Dómnefnd tilkynnir úrslit
19:00 Tækjaþoni lýkur

*Hvert og eitt teymi ráðstafar sínum tíma.

Samstarfsaðilar eru Sorpa, Tækniskólinn, Úrvinnslusjóður og fleiri.

Skráning fer fram hér

Tengiliðir verkefnisins eru Hildur Mist Friðjónsdóttir (hildurmf@ust.is), Birgitta Steingrímsdóttir (birgittasteingrims@ust.is) og Þorbjörg Sandra Bakke (thorbjorgb@ust.is) hjá Saman gegn sóun.

Sjáumst í stuði!