Á morgun er feðradagurinn og mörgum sem finnst mikilvægt að gera eitthvað til að gleðja feður í kringum sig. Smekkur feðra getur verið eins mismunandi og þeir eru margir en við teljum að það gleðji fæsta að fá enn einn hlutinn sem þeim vantar ekki, og stuðla í leiðinni að óþarfa neikvæðum umhverfisáhrifum og sóun.
Hér eru því nokkrar góðar hugmyndir að því að gleðja feður sem við erum viss um að hitti beint í mark:
Upplifun
- Útbúa góðan morgunverð eða kaffitíma
- Elda góðan mat heima
- Samverustund
- Bjóða á kaffihús, í drykk eða út að borða
Gjafabréf
- Skeggsnyrting
- Út að borða í bröns eða kvöldmat
- Nudd
- Afþreying sem tengist áhugamáli, t.d. bíó, uppistand, leikhús, tónleikar, keila, píla…