Nýjar áramótahefðir sem draga úr sóun

22. desember 2022

Áramótin eru tími þar sem við lítum um öxl, fögnum nýju ári með hækkandi sól og gleðjumst með fólkinu okkar. Undanfarin ár hafa fest sig í sessi leiðir til að fagna áramótunum sem margar hverjar hafa slæmar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna og dýra. Góðu fréttirnar eru þær að það eru tækifæri fólgin í því að skapa nýjar hefðir sem hjálpa okkur að kjarna það sem raunverulega skiptir máli í gömlu hefðunum okkar; samveru með okkar nánustu, jafnvel smá útiveru og auðvitað gleði! 

Endurnýttar og betri áramótahefðir

Íslendingar eru ríkir af skemmtilegum áramótahefðum sem er tilvalið að prófa í stað þess að setja alla áherslu á flugeldanotkun. Strenging áramótaheita og ýmis samskipti manna við álfa eru órjúfanlegur hluti af gamlársdegi margra Íslendinga en nýjar áramótahefðir eru einnig að ryðja sér til rúms. Hvernig væri að fjölskyldan myndi safnast saman á miðnætti og öskra burt árið? Jafnvel einfalt „bless 2022!“ Þeir sem hafa prófað tala um losun og hreinsun sem sendir okkur enn betri inn í nýja árið. Svo er fátt sem skilur eftir betri tilfinningar en þakkarhringurinn þar sem hver og einn fer yfir hápunkta ársins, auk þess sem það getur verið algjörlega einstakt að sameinast og syngja inn nýja árið.

Einhverjir upplifa flugelda sem órjúfanlegan hluta af áramótunum. Þá getur verið sniðugt aðsameinast með nágrönnum, fjölskyldu eða vinum um að kaupa flugelda, láta sér færri duga og njóta þeirra sérstaklega vel í betri loftgæðum. 

Hvernig er hægt að styrkja björgunarsveitirnar?

Það má segja að það sé orðin ákveðin hefð að styrkja björgunarsveitirnar á áramótunum. Besta leiðin til að styrkja þær er með beinum peningastyrk. Á heimasíðu Landsbjargar má skoða mismunandi leiðir til að leggja þeim lið. 

Saman gegn sóun 2023

Á þeim vegamótum sem áramót eru fyrir mörgum er um að gera að strengja sér áramótaheit sem snýr að því að bæta áhrif sín á umhverfið. Hér eru ráð til þess að auka líkurnar á því að ná árangri.