Umhverfisvænni umbúðir í sjávarútvegi

12. nóvember 2023

Umhverfisstofnun tók þátt í Sjávarútvegsráðstefnunni þann 2. og 3. nóvember. Birgitta Stefánsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis, fjallaði um umhverfisvænni umbúðir í sjávarútvegi á málstofu sem tileinkuð var umbúðaþróun í geiranum. 

Umhverfisstofnun lagði áherslu á að til þess að flýta innleiðingu hringrásarhagkerfisins þurfi fyrirtæki kjark til að endurhugsa núverandi kerfi og viðskiptamódel. Sjávarútvegurinn á Íslandi er til fyrirmyndar í því að fullnýta sín hráefni og hafa þar meira og minna lokað hringnum. Við þurfum að fara sömu leið þegar kemur að umbúðum, að loka hringnum. 

Leiðbeiningar um val og hönnun

Leiðbeiningar Saman gegn sóun um val og hönnun á umbúðum voru kynntar. Þar er sett fram ákveðin forgangsröðun sem fyrirtæki ættu að nýta sér í allri ákvarðanatöku um umbúðir.

Í ákvarðanatöku ætti að forgangsraða að skoða alvarlega hvar er möguleiki á að sleppa alveg umbúðum. Þar sem slíkt er ekki mögulegt ætti að leggja áherslu á að draga úr magni umbúða. Þá að stuðla að endurnotkun umbúða og að setja upp kerfi fyrir margnota umbúðir. Ef einnota umbúðir eru nauðsynlegar leggur stofnunin áherslu á að þær séu bæði endurvinnanlegar og úr endurunnum efnum.

Breytingar á umbúðaregluverki Evrópusambandsins

Fjallað var um fyrirhugaðar breytingar á umbúðaregluverki Evrópusambandsins.

Sambandið setti fram tillögu að nýju regluverki í lok árs 2022. Það er ánægjulegt að sjá að áherslur sambandsins eru í góðu samræmi við forgangsröðun Umhverfisstofnunar.

Þar er áhersla á endurvinnanlegar umbúðir sem raunverulega fara í endurvinnslu og að endurunnin efni séu notuð í umbúðaframleiðslu.

Þar má einnig finna kröfur sem gerðar eru til að einfalda og styðja við neytendur þegar kemur að flokkun með samræmdum flokkunarmerkingum og samræmdum merkingum á hlutfalli endurunna efna í umbúðunum.

Önnur atriði úr regluverkinu sem vert er að nefna eru:

  • Lágmörkun og takmörkun á skaðlegum íblöndunarefnum
  • Takmörkun á leyfilegu tómarúmi í flutningsumbúðum
  • Bann við umbúðum utan um ferskt grænmeti og ávexti
  • Bann við smáumbúðum utan um snyrtivöru og utan um matvöru
  • Skylda að kaffihylki og límmiðar á ávexti og grænmeti verði lífniðurbrjótanlegir

Skoða glærur frá kynningunni