Umfangsmikil matarsóunarrannsókn að hefjast

21. ágúst 2019

Umhverfisstofnun hefur afráðið að hrinda af stað ítarlegri rannsókn á umfangi matarsóunar á Íslandi árið 2019.

Í lok vikunnar verður byrjað að hringja út til ríflega 1.000 heimila sem lenda í slembiúrtaki og heimilisfólk beðið að taka þátt í rannsókninni. Þátttakendur verða beðnir að vigta mat og matarúrgang sem fer til spillis á heimilinu í eina viku og skrá inn í gagnagátt sem vistuð er á heimasíðu Umhverfisstofnunar.  Síðar verður hringt í fyrirtæki, einnig skv. slembivali. Gallup sér um úthringingarnar.

Umhverfisstofnun vonar að sem flestir sjái sér þess kost að taka þátt í rannsókninni, því góð þátttaka er forsenda þess að áræðanlegar upplýsingar fáist um umfang matarsóunar hér á landi. Geta má þess að Umhverfisstofnun stóð fyrir sambærilegri rannsókn árið 2016.

Matarsóunarrannsóknin er gerð með styrk frá Evrópsku hagstofunni (EUROSTAT). Tilgangurinn er að afla hagtalna um umfang matarsóunar á Íslandi.

Umsjónarmaður rannsóknarinnar er Margrét Einarsdóttir, sérfræðingur á sviði loftlagsmála og græns samfélags. margret.einarsdottir@umhverfisstofnun.is