Um verkefnið

Stefnan 'Saman gegn sóun' leggur áherslu á nægjusemi, betri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.

„Sjö af hverjum tíu vilja breyta hegðun sinni til að minnka umhverfisáhrif sín“

Lang flestir vilja leggja sitt af mörkum til að draga úr sóun og neikvæðum umhverfisáhrifum. Þetta er niðurstaðan úr umhverfiskönnun Gallups 2021, en þar sögðust flestir vilja breyta hegðun sinni mjög mikið eða frekar mikið til að minnka áhrif sín á umhverfið. Saman gegn sóun vill aðstoða fólk við að ná því markmiði.

Um verkefnið

Saman gegn sóun er almenn stefna umhverfis, orku- og loftslagsráðherra um úrgangsforvarnir sem gildir frá árinu 2016 til 2027. Umhverfisstofnun fer með umsjón með Saman gegn sóun. 

Í samræmi við hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins er sett í forgang að draga úr myndun úrgangs og stuðla þannig að minni eftirspurn eftir náttúruauðlindum. Í stefnunni er lögð áhersla á nægjusemi, betri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.

Markmið stefnunnar
  • að draga úr myndun úrgangs
  • að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
  • að bæta nýtingu auðlinda, m.a. með áherslu á græna nýsköpun
  • að draga úr hráefnisnotkun samhliða minni umhverfisáhrifum
  • að minnka dreifingu á efnum sem eru skaðleg heilsu og umhverfi
Aðgerðir stefnunnar
  • Auka sjálfbæra neyslu og stuðla að því að lífshættir haldist í hendur við aðferðir sem auka nýtni svo sem betri nýting hluta svo þeir verði ekki að úrgangi
  • Draga úr notkun einnota umbúða
  • Stuðla að hönnun vöru með efnum sem ekki eru skaðleg heilsu og umhverfi
  • Auka græna nýsköpun
  • Draga enn frekar úr förgun úrgangs
  • Líta á úrgang sem auðlind sem ber að nýta

Stefnan

Hér er hægt að nálgast stefnuna í heild sinni. Stefnan er sett með vísan í 2. mgr. 5. gr. laga nr.55/2003 um meðhöndlun úrgangs. 

Saman gegn sóun

Áhersluflokkar stefnunnar

Unnið er að mótun nýrrar stefnu um þessar mundir og verða áhersluflokkar hennar kynntir að þeirri vinnu lokinni.