Spjarasafnið sigurvegari Spjaraþonsins!

31. ágúst 2020

Að lokinni tveggja daga hugmyndavinnu stóð hugmyndin Spjarasafn uppi sem sigurvegari. Af sóttvarnarástæðum fór viðburðurinn alfarið fram rafrænt.

Spjarasafnið er einskonar Airbnb fyrir fatnað og gerir notendum kleift að leigja út og fá lánaðar flíkur til skamms tíma og eftir hentisemi. Teymið samanstóð af Ásgerði Heimisdóttur, Dagnýju Guðmundsdóttur, Kristínu Edda Óskarsdóttur, Patriciu Önnu Thormar og Sigríði Guðjónsdóttur.

Dómnefnd skipuðu Eliza Reid, forsetafrú, Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, Kristján Mikaelson, frumkvöðull og framkvæmdarstjóri Rafmyntaráðs Íslands og Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður og eigandi merkisins MAGNEA.

Um helgina hófst einnig átakið Notað er nýtt (#notadernytt) á samfélagsmiðlum þar sem fólk er hvatt til að deila myndum af vel nýttum fötum. Hvetjum alla til að fylgjast með á Instagram og Facebook