Spennandi dagskrá í Nýtniviku

20. nóvember 2020

Á morgun, 21. nóvember, hefst Nýtnvikan og stendur hún yfir til 29. nóvember. Átakið er samevrópskt og hefur það að markmiði að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs. 

Í ár er þema vikunnar „það sem ekki sést“ og er þar vísað til alls úrgangs og sóunar sem myndast í framleiðsluferli vöru áður en hún kemst í okkar hendur en einnig mengunar sem verður vegna virkni vöru án þess að við verðum þess sérstaklega vör. Dæmi um úrgang og sóun sem við gerum okkur svo sannarlega ekki alltaf grein fyrir er orkunotkun og kolefnisspor netnotkunar. 

Umhverfisstofnun og Reykjavíkurborg bjóða til þriggja hádegiserinda í tilefni Nýtniviku. Erindin fara fram á Teams og eru allir velkomnir. 

Jukka Heinonen, prófessor við Háskóla Íslands, ríður á vaðið á mánudag og flytur erindið Out of sight, out of mind: the outsourced global warming impact of Iceland. Erindið fer fram á ensku og fjallar um neysludrifið kolefnisspor Íslendinga, en samkvæmt rannsóknum Jukka er það með því hæsta sem þekkist á heimsvísu. Sjá viðburð hér. 

Á þriðjudag stígur Hrefna Björg Gylfadóttir á stokk með erindið Að lifa í samræmi við gildin okkar. Hrefna Björg er loftslagsaðgerðarsinni sem hefur kannað mismunandi leiðir til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt, allt frá því að lifa zero waste lífsstíl yfir í að leiða stærri verkefni tengd kerfisbreytingum. Hrefna Björg ætlar að fjalla um hvernig við sem einstaklingar getum haft áhrif á tímum loftlagsbreytinga. Sjá viðburð hér. 

Þriðja og síðasta erindið fjallar um umhverfisáhrif gagnavera og netnotkunar. Árni Jón Eggertsson framkvæmdastjóri Reykjavík Data Center segir okkur frá umhverfisáhrifum gagnavera og hvernig við getum dregið úr stafrænu kolefnisspori okkar. Erindið fer fram á föstudegi í Nýtnivikunni, sjá viðburð hér.