Saman gegn textílsóun í allan vetur

23. október 2021

Í dag er fyrsti vetrardagurinn. Þegar veturinn skellur á og veður fer að kólna fara flestir að huga að hlýrri fatnaði. Verslanir auglýsa oft haust- og vetrartísku sem einkennist oft af hlýjum peysum, treflum og yfirhöfnum og sumir kaupa sér ný föt fyrir veturinn.  En hvernig getur maður undirbúið sig fyrir veturinn án þess að ýta undir óþarfa neyslu og sóun? Svarið er einfalt, og snýst um að fylgja þessum fimm ráðum:

  1. Kaupum minna
  2. Kaupum notað
  3. Notum lengur
  4. Gerum við
  5. Endurvinnum meira

Byrjum á því að fara yfir það sem við eigum og notum það sem hægt er að nota áfram. Ef flíkur sem til eru passa ekki lengur eða nýtast ekki af öðrum ástæðum er hægt að kaupa notað eða leigja. Með því að kaupa notaðar flíkur sparar þú orku, efni og vatn sem notað er í framleiðslu nýrra flíka. 

Vissir þú að…

…um 8-10 % losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum er frá textíliðnaði?

…síðan 2018 hafa um 8% fleiri dregið úr einkaneyslu til að draga úr umhverfisáhrifum?

…með því að nota fötin okkar tvöfalt lengur getum við dregið úr umhverfisáhrifum af neyslu okkar á fatnaði um helming? 

Hlýjum okkur í notaðri peysu

Við getum gert enn betur þar sem mikið úrval er af búðum sem selja notuð föt. Gæði notaðs fatnaðar á Íslandi eru almennt mikil og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Hér má finna lista yfir nokkrar verslanir sem selja notað: 

  • Fatabúðir Rauða Krossins  – um allt land. 
  • Aftur nýtt – Sunnuhlíð 12, Akureyri. Básar þar sem hægt er að kaupa og selja notaðan fatnað. 
  • Barnaloppan– Skeifunni 11, Reykjavík. Básar þar sem hægt er að kaupa og selja notaðar barnavörur. 
  • Extraloppan – Smáralind. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt fyrir fullorðna. 
  • Hertex – Reykjavík og Akureyri. Fata og nytjamarkaður. 
  • Kringlubazaar – Kringlunni. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt fyrir bæði börn og fullorðna. 
  • Spúútnik – Kringlunni og Laugavegi 28b, Reykjavík. Notuð föt til sölu. 
  • Stína fína – Strandgötu 29, Hafnarfirði. Umboðssala á notuðum fatnaði, skóm og fleira fyrir konur. 
  • Trendport – Hafnargata 60, Keflavík. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt fyrir bæði börn og fullorðna. 
  • Wasteland Reykjavík – Ingólfsstræti 5, Reykjavík. Notuð föt til sölu. 
  • Verzlanahöllin – Laugavegi 26, Reykjavík. Þar er hægt að kaupa og selja notuð föt. 

Framhaldslíf fyrir yfirhafnir

Endurvinnum eða komum í áframhaldandi notkun fötum sem við getum ekki notað lengur. Skilum á rétta staði.  Skila má textíl meðal annars til: