Nýútkomin rafbók um plast: Hreint haf – Plast á norðurslóðum

10. desember 2021

Námsefnið Hreint haf – Plast á norðurslóðum er nú komið út fyrir yngstu bekki grunnskólans. Í námsefninu læra börnin um áhrif hafsins á líf þeirra og hvaða áhrif þau hafa á hafið. Rafbókin er unnin í samstarfi Umhverfisstofnunar, Landverndar og Menntamálastofnunar. Námsefnið er skrifað af Margréti Hugadóttur, námsgagnahönnuði hjá Landvernd, og gefið út af Menntamálastofnun með styrk frá Umhverfisstofnun í gegnum verkefnið NordMar Plastic – formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

Hvernig hefur hafið áhrif á líf okkar og hvernig höfum við áhrif á hafið?

Í bókinni Hreint haf – Plast á norðurslóðum er hafið skoðað á heildstæðan hátt. Efnið byggir á haflæsi (e. ocean literacy) og valdeflandi aðferðum menntunar til sjálfbærni (e. education for sustainability).

Nemendur á yngsta- og miðstigi grunnskóla læra um áhrif hafsins á líf okkar og hvernig við höfum áhrif á hafið. Fjallað er um plast í hafi og sjónum beint að því hvernig hægt er að hjálpa hafinu.  Í þessari bók er fjallað um mikilvægi hafsins fyrir allt líf á Jörðinni og hafið notað sem rauður þráður til að kenna um áhrif manna á náttúruna, mengun og getu til aðgerða.

Bókin skiptist í þrjá valdeflandi kafla sem byggja á haflæsi.

Hreint haf á Norðurlöndum

Bókin hefur verið þýdd á fimm norðurlandatungumál og er aðgengileg öllum til afnota á vef Menntamálastofnunar og Norden i skolen.

Um útgáfuna

Hreint haf – Plast á norðurslóðum samanstendur af rafbók og verkefnasafni og kennsluleiðbeiningum. Bókin er unnin í samstarfi Landverndar, Menntamálastofnunar og Umhverfisstofnuna. Útgáfan var styrkt af NordMar Plastics, formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2019.

Höfundur námsefnisins er Margrét Hugadóttir sérfræðingur hjá Landvernd. Hún er náttúrufræðikennari með meistarapróf í fjölmenningarlegum kennsluháttum og hefur mikla reynslu af námsefnisgerð sem byggir á hugsmíðahyggju, menntun til sjálfbærni, leitarnámi og umbreytandi námi.

Áður skrifaði Margrét námsefni á borð við Hreint haf (2020), Vísindavöku (2017), Skapandi skóli, handbók um fjölbreytta kennsluhætti (2017), og Jörð í hættu!?(2016).

Hönnun og teikningar voru í höndum Aronar Freys Heimissonar grafisks hönnuðar.