Plastaþon

Hugmyndasmiðja 2019

Fiskur úr plasti

Plastaþon

Plastaþon sem haldið var í september 2019 var nokkurs konar hugmyndasmiðja sem leitaði lausna við plastvandanum. Þar fengu þátttakendur ýmsa fræðslu og tækifæri til að hitta fjölbreyttan hóp af fólki og skapa nýstárlegar lausnir undir handleiðslu sérfræðinga.  Þátttakendur mynduðu svo teymi og unnu saman að lausnum við þeim áskorunum sem heimurinn stendur frammi fyrir varðandi ofnotkun á plasti. Áskoranirnar sem þátttakendur fengu snéru að því að finna til leiðir til að draga úr plastnotkun, auka endurvinnslu og koma í veg fyrir plastmengun. 

Plastaþon var bæði hluti af stefnunni Saman gegn sóun og NordMarPlastic sem er formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Fjölbreyttur hópur samstarfsaðila tók þátt í viðburðinum ásamt Umhverfisstofnun, þar á meðal Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Plastlaus september, Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, Matís og IcelandicStartups.

 

Hugmyndin Beljur í búð sigurvegarar 2019

Hugmyndin gengur út á að setja upp sjálfsafgreiðsluvélar fyrir mjólkurvörur í verslunum þannig að kaupandinn geti dælt vörunni sjálfur í fjölnota umbúðir. Teymið samanstóð af tveimur listakonum, tveimur nemum úr Tækniskólanum, verkfræðingi frá Eflu og markaðsstjóra Krónunnar. Teymismeðlimir eru þær Dröfn Sveinsdóttir, Gríma Katrín Ólafsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Móeiður Helgadóttir, Lára Kristín Þorvaldsdóttir og Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir. Í rökstuðningi dómnefndar kom fram að stór þáttur í sigri lausnarinnar væri sú staðreynd að hún gæti vel orðið að veruleika í náinni framtíð.

 

 

 

 

Fiskur úr plasti