Opinn fundur í Iðnó 17. september

4. september 2024

Umhverfisstofnun hefur verið falið að endurskoða stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir – Saman gegn sóun. Eftir að hafa ferðast um landið á vordögum og hitt fulltrúa almennings, sveitarfélaga og fyrirtækja erum við komin með stóran banka af frábærum hugmyndum um aðgerðir til að draga úr sóun.

Nú er komið að því að velja þær bestu úr, móta betur og forgangsraða og við viljum gefa öllum áhugasömum færi á að hafa áhrif. Þann 17. september frá kl. 9-12 verðum við með opinn fund í Iðnó þar sem hópur hagaðila mun ræða aðgerðirnar og þátttakendur fá kost á að forgangsraða þeim.

Frítt inn og léttar veitingar!

Hér er viðburðurinn á Facebook
Skráning er nauðsynleg – sjá hér

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?
• Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda
• Fræðsla um hringrásarhagkerfið
• Tækifæri til að ræða við fólk, fyrirtæki og hið opinbera um þessi mál

DAGSKRÁ
• Saman gegn sóun – starfsfólk Umhverfisstofnunar
• Hringrásarhagkerfið Ísland – Guðmundur Steingrímsson, umhverfisfræðingur
• Pallborð þar sem hagaðilar fara yfir kosti og galla þeirra aðgerða sem hafa verið ræddar
• Samtal um aðgerðir og þeim forgangsraðað

FYRIR HVER?
• Öll!
• Starfsfólk fyrirtækja
• Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
• Nemendur
• Hönnuði og listafólk
• Almenning

Athugið að fundinum verður ekki streymt.