Við mótum nýja stefnu og þú getur haft áhrif!
Saman gegn sóun heldur fundi víðsvegar um landið á vordögum 2024
![](https://samangegnsoun.is/wp-content/uploads/2024/03/SGS-FB-Cover-1.png)
Skráning
… er nauðsynleg! Skráningarformið er hér.
![Tækjaþon-5](https://samangegnsoun.is/wp-content/uploads/2024/03/Taekjathon-5-scaled.jpg)
![Tækjaþon-2](https://samangegnsoun.is/wp-content/uploads/2024/03/Taekjathon-2-scaled.jpg)
![Tækjaþon-97](https://samangegnsoun.is/wp-content/uploads/2024/03/Taekjathon-97-scaled.jpg)
Aðgerðaáætlun verður til – vertu með!
- Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
- Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
- Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
- Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?
Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir – Saman gegn sóun.
Við erum að endurskoða stefnuna og viljum heyra frá þér! Þess vegna ætlum við að halda opna fundi á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Hvolsvelli og höfuðborgarsvæðinu á næstu vikum. Þar gefst áhugasömum færi á að fræðast um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og koma með tillögur að aðgerðum.
FYRIR HVER?
- Öll!
- Starfsfólk fyrirtækja
- Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
- Nemendur
- Almenning
AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?
- Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda
- Fræðsla um hringrásarhagkerfið
- Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga
- Tækifæri til að ræða við fólk, fyrirtæki og hið opinbera um þessi mál
HVAR OG HVENÆR?
- Hof Akureyri 9. apríl kl. 9-11:30
- Edinborgarhúsið Ísafirði 16. apríl kl. 13-15:30
- Hótel Valaskjálf Egilsstöðum 22. apríl kl. 13-15:30
- Midgard Base Camp 19. júní kl. 10-12
- Höfuðborgarsvæðið 17. september kl. 9-12 – Staðsetning auglýst síðar
DAGSKRÁ
- Starfsfólk Saman gegn sóun hjá Umhverfisstofnun segir frá verkefninu: Hver er staðan á Íslandi? Hvaða tækifæri eru til að gera enn betur?
- Yfirferð á hugmyndum sem komið hafa fram
- Samtal um aðgerðir og þeim forgangsraðað
Nánari dagskrá auglýst á næstu dögum!
Tengliðir verkefnisins eru Birgitta Steingrímsdóttir (birgittasteingrims@ust.is) og Þorbjörg Sandra Bakke (thorbjorgb@ust.is) hjá Saman gegn sóun.
Hlökkum til að sjá ykkur!