Rannsóknir sýna að þau sem leggja áherslu á samveru, gæðastundir og umhverfisvænni neysluvenjur eru almennt ánægðari með jólin heldur en þau sem leggja áherslu á að eyða peningum og þiggja gjafir.

Hér má finna hugmyndir að gjöfum sem gefa:

Gefum samveru

Gjafakort upp á næturpössun er dæmi um gjöf sem gleður þvert á kynslóðir. Þá er einnig hugulsamt að bjóða í mat til sín eða gefa gjafakort upp á kósíkvöld, göngutúr, fjallgöngu o.s.frv.

Gefum upplifun

Bjóðum í leikhús, á tónleika, á námskeið eða í ferð með útivistarfélagi, svo fátt eitt sé nefnt.

Gefum til góðgerðamála

Öll þekkjum við fólk sem á allt og vantar ekkert. Gefum til góðs málefnis í þeirra nafni og sendum þeim kort sem útskýrir hvernig gjöfin mun nýtast til góðs.

Gefum heimatilbúna gjöf

Heimatilbúin gjöf gefur á alveg sérstakan hátt. Hvar liggja hæfileikarnir? Í prjónaskap, sultugerð eða listum?

Gefum áskrift

Það hittir í mark hjá mörgum að fá áskrift að góðri sjónvarpsrás eða jafnvel streymisveitu með sjónvarpsefni, hljóðbókum eða tónlist.

Gefum notað

Munum að notaðar gjafir eru góðar gjafir, og það á ekki síst við um gjafir til barna. Börnum stendur á sama um umbúðir, skilamiða eða verðmiða og um að gera að leyfa heilum leikföngum og bókum að finna ný heimili um jólin.

Gefum það sem vantar

Spyrjum þiggjandann hvort hann vanti eitthvað. Stundum er ekkert betra en að fá akkúrat það sem vantar.

 

Á vef Umhverfisstofnunar má nálgast frekari upplýsingar um leiðir til að gera jól og áramót umhverfisvænni.