Hreint Ísland
Íslensk ferðaþjónusta á mikið undir ósnortinni náttúru og hreinni ímynd Íslands. Það er því mikilvægt fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu að gera sitt besta til að lágmarka plastnotkun og -mengun og fræða ferðamenn um leiðir til að gera slíkt hið sama.Ábyrg plastnotkun í ferðaþjónustu

Draga úr plastnotkun
Öll fyrirtæki geta dregið úr plastnotkun sinni og hugsað samband sitt við plast upp á nýtt. Til að hefja vegferðina í átt að ábyrgari plastnotkun er nærtækast að fara vel yfir öll innkaup, setja upp skilvirka flokkunaraðstöðu og fræða starfsfólk og ferðamenn. Helstu upplýsingar um hvernig draga má úr plastnotkun á vinnustaðnum er að finna hér.
Umhverfisvottun
Umhverfisvottanir á borð við Svaninn, Evrópublómið og Bláa engilinn hafa það að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti.
Undanfarin ár hefur verið mikill uppgangur í Svansvottaðari þjónustu hér á Íslandi en dæmi um ferðaþjónustufyrirtæki sem geta fengið slíka vottun eru hótel, veitingastaðir og ráðstefnurými. Svansvottun er markviss leið til að tryggja árangur í umhverfismálum og skapa sér sérstöðu á samkeppnismarkaði.

