Áttu grænmeti á síðasta séns? Vinningshafi samfélagsmiðla leiksins okkar sem nefnist Uppskriftir gegn sóun er með lausn á þeim vanda. @helenareynis leggur til að maður bjargi málunum með því að skella í einn núðlurétt. Þessar núðlur eru fyrir nautnaseggi, því þær eru bæði sjúklega easy og sjúklega tasty, eins og Helena sjálf orðaði það.
Kremaða pastað hennar Kristrúnar
Innihald:
- Núðlur, t.d. instant núðlur
- Grænmeti sem er til, t.d. zucchini, gulrætur, sveppir
- Laukur, t.d. blanda af gulum lauk, hvítlauk og vorlauk
- sesamolía, eða önnur góð olía
- sesamfræ (má sleppa)
- soyja sósa
- gúrkubitar til skreytinga (má sleppa)
Aðferð:
- Hakkið lauk
- Skerið grænmeti í passlega bita
- Steikið grænmeti og lauk á pönnu. Hart grænmeti fyrst, svo mjúku grænmeti bætt við.
- Sjóðið núðlur samkvæmt leiðbeiningum
- Skvettið á smá sesamolíu og soya sósu
- Toppið með sesamfræjum og gúrkubitum
Hægt er að finna þessa uppskrift og fleiri uppskriftir gegn sóun hér. Við óskum @helenareynis til hamingju með vel verðskulduð verðlaun í leiknum og sendum henni 10.000 króna gjafabréf frá Te & Kaffi sem þökk.