Að lokinni tveggja daga hugmyndavinnu stóð hugmyndin Spjarasafn uppi sem sigurvegari. Af sóttvarnarástæðum fór viðburðurinn alfarið fram rafrænt. Spjarasafnið er einskonar Airbnb fyrir fatnað og gerir notendum kleift að leigja út og fá lánaðar flíkur til skamms tíma...
Dagana 28. og 29. ágúst heldur Umhverfisstofnun Spjaraþon, hugmyndasmiðju þar sem þátttakendur vinna í teymum að skapandi lausnum sem miða að því að draga úr umhverfisáhrifum textíls. Í Spjaraþoninu er farið yfir helstu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í...
Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins um einnota plastvörur (Single-use-plastics directive). Með þessari samþykkt verður meðal annars bannað að setja tilteknar, algengar...
Nú hefur starfshópur skipaður fulltrúum úr allri virðiskeðju matvæla, allt frá ræktun til framleiðslu og neyslu, skilað tillögum að aðgerðaáætlun gegn matarsóun til Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra. Skýrslan verður í almennri kynningu...
Matarsóun er umfangsmikið vandamál sem snýr ekki aðeins að sóun matvæla heldur einnig sóun á fjármunum og sóun á auðlindum jarðar. Það sýnir umfang vandans að Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur áætlað að um þriðjungi framleiddra matvæla sé sóað. Áreiðanleg gögn...
Vöktun á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2019 er lokið og eru niðurstöður aðgengilegar á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Helstu niðurstöðurUm 64% fýlanna voru með plast í meltingarvegi, þar af um 13% með yfir 0,1 g. Að meðaltali voru 3,7 plastagnir í...
Hugmyndin Beljur í búð stóð uppi sem sigurvegari í Plastaþoni Umhverfisstofnunar og Plastlauss septembers sem fram fór nú um síðustu helgi. Sjö teymi unnu að lausnum á plastvandanum en ákaflega fjölbreyttur hópur fólks tók þátt í viðburðinum. Dómnefnd skipuðu Auður...
Umhverfisstofnun hefur afráðið að hrinda af stað ítarlegri rannsókn á umfangi matarsóunar á Íslandi árið 2019. Í lok vikunnar verður byrjað að hringja út til ríflega 1.000 heimila sem lenda í slembiúrtaki og heimilisfólk beðið að taka þátt í rannsókninni. Þátttakendur...
Óhóf, sem er hugvekja í nafni matarsóunar, var haldið í annað sinn þann 5. desember síðast liðinn og var þar boðið upp á veitingar sem eiga það sameiginlegt að vera góð nýting á matvælum og jafnframt uppspretta hugmynda að því hvernig veislumatur getur allt eins verið...
Matarauður Íslands og Hótel- og matvælaskólinn efna til hugmynda- og uppskriftasamkeppni um þjóðlega rétti við þjóðvegina okkar. Kannski verður þín hugmynd á matseðli veitingarstaða hringinn í kringum landið? Það getur verið erfiðleikum bundið að skilgreina hvað sé...