Evrópsk nýtnivika er samevrópskt átak sem stendur yfir dagana 16.-24nóvember 2024. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs 

Matarsóun í brennidepli í ár

Þema ársins er matarsóun undir slagorðinu Það er óbragð af matarsóun!  Sérstök áhersla er lögð á nýtingu afganga og eru fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir, skólar og almenningur hvött til þess að leggja sitt af mörkum til að sporna gegn matarsóun með því að gefa afgöngunum gaum.

Matarsóun á Íslandi jafngildir um 160 kílóum á hvern íbúa á ári. Tæpur helmingur allrar matarsóunar á sér stað í frumframleiðslu matvæla en um 40% á heimilum. Lágmörkun matarsóunar er loftslagsmál, efnahagsmál og mikilvægur þáttur í innleiðingu hringrásarhagkerfisins.

Það eru ýmsar leiðir færar til að vekja athygli á matarsóun og nýtingu afganga og bendum við á fræðsluefni Saman gegn sóun sem finna má t.d. hér og fyrir atvinnulífið hér. Þar má finna umfjallanir um afganga, geymsluaðferðir og uppskriftir gegn sóun svo eitthvað sé nefnt.

Vinnustaðir geta t.d. lagt sérstaka áherslu á að elda úr afgöngum eða leyfa starfsfólki að taka afganga heim. Veitingastaðir geta hvatt viðskiptavini til að taka afganga með heim og heimilin geta leikið sér að því að skipuleggja innkaup vikunnar með afganga í huga eða farið í kaupstopp og nýtt það sem til er í skápunum. Möguleikarnir eru endalausir!

Kynningarefni sem öll geta nýtt sér

Í samstarfi við Reykjavíkurborg höfum við útbúið einfalt kynningarefni sem nýtist öllum þeim sem vilja taka þátt í Nýtnivikunni í ár:

A4 plakat Nýtnivikunnar í ár

Instagram mynd

Facebook cover mynd

Saman gegn sóun – matarsóun

Saman gegn sóun – matarsóun í atvinnulífinu

Hverskonar nýtni í hávegum höfð

Það er um að gera að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn í Nýtnivikunni; halda viðgerðarkaffi, skiptimarkaði, fyrirlestra, kynna nýjar lausnir eða hvað eina sem styður við minni sóun, sama af hvaða tagi hún er.

Einnig er hægt að hafa samband við okkur í gegnum netfangið samangegnsoun@samangegsoun.is ef einhverjar spurningar vakna.

Deilum því sem vel er gert!

Við hvetjum öll sem taka þátt í Nýtnivikunni í ár að deila því með okkur á Facebook síðu Saman gegn sóun eða Instagram, með því að merkja okkur eða senda skilaboð og við deilum því áfram. Það má líka benda okkur á það sem aðrir eru að gera vel!“

#samangegnsoun #samangegnmatarsoun #nytnivikan #ewwr2024

Ekki hika við að hafa samband við okkur í Saman gegn sóun í gegnum netfangið samangegnsoun@samangegsoun.is ef einhverjar spurningar vakna.

Kynningar- og fræðsluefni fyrri ára

Við elskum endurnýtingu og bendum því á Nýtnivikuefni okkar frá fyrri árum:

Sóun er dottin úr tísku – plakat og leiðbeiningar um fataskiptimarkaði

Höfum það umbúðalaust – leiðbeiningar fyrir söluaðila um afgreiðslu matvæla í ílát viðskiptavina

Höfum það umbúðalaust – leiðbeiningar fyrir neytendur um notkun fjölnota umbúða

Það sem ekki sést – fyrirlestraröð, erindi frá Jukka Heinonen, Hrefnu Björgu Gylfadóttur og Árna Jóni Eggertssyni.