Bestu gjafirnar eru alltaf á 100% afslætti

24. nóvember 2022

Hvað veitir okkur raunverulega ánægju um jólin?

Ofneysla er dýrkeypt fyrir umhverfið og henni fylgir stress og álag. Við eyðum miklum tíma í að vinna okkur inn laun fyrir neyslunni, og við eyðum tíma í neysluna sjálfa. Væri honum kannski betur varið í eitthvað sem raunverulega styður við velferð okkar og hamingju?

Rannsóknir sýna að þau sem leggja áherslu á samveru, gæðastundir og umhverfisvænni neysluvenjur eru ánægðari með jólin heldur en þau sem leggja áherslu á að eyða peningum og þiggja gjafir.  

Ef við ætlum að nýta okkur tilboðsdagana framundan er gott að skrifa tímanlega hjá sér hvað mann vantar eða langar að gefa og nýta dagana til þess að gera góð kaup. Mantran er „vantar mig þetta og mun þetta koma að góðum notum?“

Gjafir sem gefa

Við höfum tekið saman lista yfir gjafir sem byggja á samveru og gæðastundum, gjafir sem gefa:

Gefum samveru

Gjafakort upp á næturpössun er dæmi um gjöf sem gleður þvert á kynslóðir. Þá er einnig hugulsamt að bjóða í mat til sín eða gefa gjafakort upp á kósíkvöld, göngutúr, fjallgöngu o.s.frv.

Gefum upplifun

Bjóðum í leikhús, á tónleika, á námskeið eða í ferð með útivistarfélagi, svo fátt eitt sé nefnt.

Gefum til góðgerðamála

Öll þekkjum við fólk sem á allt og vantar ekkert. Gefum til góðs málefnis í þeirra nafni og sendum þeim kort sem útskýrir hvernig gjöfin mun nýtast til góðs.

Gefum heimatilbúna gjöf

Heimatilbúin gjöf gefur á alveg sérstakan hátt. Hvar liggja hæfileikarnir? Í prjónaskap, sultugerð eða listum?

Gefum áskrift

Það hittir í mark hjá mörgum að fá áskrift að góðri sjónvarpsrás eða jafnvel streymisveitu með sjónvarpsefni, hljóðbókum eða tónlist.

Gefum notað

Munum að notaðar gjafir eru góðar gjafir, og það á ekki síst við um gjafir til barna. Börnum stendur á sama um umbúðir, skilamiða eða verðmiða og um að gera að leyfa heilum leikföngum og bókum að finna ný heimili um jólin.

Gefum það sem vantar

Spyrjum þiggjandann hvort hann vanti eitthvað. Stundum er ekkert betra en að fá akkúrat það sem vantar.

Á vef Umhverfisstofnunar má nálgast frekari upplýsingar um leiðir til að gera jól og áramót umhverfisvænni.